Skilmálar húsaleigusamninga Geymt en ekki gleymt ehf.
1 Almennt
1.1 Almennir skilmálar Geymt en ekki gleymt ehf., kt. 470621-0520 (hér eftir leigusali) gilda um öll viðskipti um leigu á geymslum leigusala, nema um annað sé samið skriflega. Skilmálar þessir, ásamt leigusamningi, gjaldskrá, persónuverndarstefnu leigusala og eftir atvikum samningsviðaukum fyrir hvern viðskiptavin, fela að jafnaði í sér heildarsamning aðilanna um viðskiptin.
1.2 Almennir skilmálar þessir taka gildi þann 5. ágúst 2026.
2 Gildissvið skilmála Geymt en ekki gleymt ehf.
2.1 Skilmálar þessir gilda um leigu og afnot leigutaka af geymslum leigusala.
2.2 Leigutaki skuldbindur sig til að hlíta skilmálum þessum að öllu leyti.
3 Vanefndir og riftun
3.1 Vanefnd leigutaka kann að leiða til riftunar samninga og getur leigusali beint skriflegri áskorun til leigutaka um úrbætur. Hvorum aðila er heimilt að rifta samningssambandi aðila ef um er að ræða verulega vanefnd af hálfu gagnaðila í samræmi við skilmála þessa, samninga aðila og ákvæði húsaleigulaga nr. 36/1994. Leigusali getur auk venjulegra vanefndarheimilda meðal annars rift samningi vegna vanefnda ef:
3.1.1 Leigutaki greiðir ekki leigu á réttum gjalddaga og vanrækir að greiða hana innan 7 sólarhringa frá því að leigusali hefur sent honum skriflega áskorun um greiðslu.
3.1.2 Leigutaki vanrækir að öðru leyti skyldur sínar samkvæmt leigusamningi eða ákvæðum húsaleigulaga nr. 36/1994 á svo stórfelldan hátt að rýming hans úr húsnæðinu telst eðlileg eða nauðsynleg, svo sem ef leigutaki notar hið leigða með öðrum hætti en um er samið eða vanrækir samningsbundnar skyldur sínar þrátt fyrir skriflega áskorun leigusala um úrbætur.
3.1.3 Ef leigutaka er veitt heimild til greiðslustöðvunar, hann fær heimild til að leita nauðasamninga eða verður tekinn til gjaldþrotaskipta.
3.2 Veruleg vanefnd leigutaka veitir leigusala heimild til að takmarka aðgang leigutaka að hinu leigða, þ.m.t. með því að breyta læsingu hins leigða.
3.3 Vanefnd leigutaka veitir leigusala beinan og ótakmarkaðan rétt til að rýma hið leigða, með einhliða aðgerð án atbeina sýslumanns. Er leigusala heimilt að farga þeim munum sem geymdir eru í hinu leigða, eða leggja hald á þá til tryggingar útistandandi leigugreiðslna. Leigutaki skal bera allan kostnað sem hlýst af rýmingu, förgun og haldlagningu. Komi til haldlagningar muna samkvæmt ákvæði þessu er leigusala heimilt að selja þá án frekari fyrirvara og skal söluandvirði ganga til greiðslu útistandandi skuldar leigutaka. Hvers konar tjón sem leigutaki kann að verða fyrir í tengslum við sölu muna samkvæmt ákvæði þessu skal alfarið borið af leigutaka sjálfum, hvort sem um fjártjón eða ófjárhagslegt tjón er að ræða. Ber leigusali enga ábyrgð á hvers konar tjóni sem leigutaki kann að telja sig hafa orðið fyrir vegna þessa, óháð því hvort leigutaki geri síðar upp útistandandi skuldir við leigusala.
3.4 Leigusali skal tilkynna leigutaka um rýmingu hins leigða, förgun, haldlagningu og sölu muna með a.m.k. 7 daga fyrirvara. Fyrirvarinn telst frá dagsetningu tilkynningar sem send er leigutaka.
3.5 Leigusala er heimilt að halda eftir fyrirframgreiddri leigu og/eða greiðslutryggingu til tryggingar útistandandi kröfu á hendur leigutaka.
4 Uppsögn samnings
4.1 Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á ótímabundnum samningum er einn mánuður. Leigutíma skal telja í heilum mánuðum frá fyrsta leigudegi, sbr. eftirfarandi dæmi: Ef upphafsdagur leigu er 10. janúar og uppsögn er móttekin 1. febrúar, skal síðasti leigudagur vera 9. mars. Formleg skil hins leigða skulu hafa farið fram eigi síðar en kl. 17:00 þann 10. mars.
4.2 Leigusala er heimilt að rifta samningi við leigutaka án fyrirvara ef leigutaki gerist sekur um veruleg samningsbrot eða vanefndir á samningsskyldum sínum, sbr. ákvæði 3. gr. skilmála þessara og húsaleigulög nr. 36/1994. Vanefnd viðskiptavinar á einum samningi við leigusala heimilar leigusala riftun eða uppsögn allra samninga sem leigutaki kann að hafa við leigusala.
5 Form uppsagnar
5.1 Uppsögn af hálfu leigutaka skal tilkynna skriflega með tölvupósti á netfangið geymt@geymt.is, eða með öðrum sannanlegum skriflegum hætti.
6 Ósk leigutaka um tímabundna framlengingu
6.1 Leigutaki sem sagt hefur upp leigusamningi getur óskað eftir tímabundinni framlengingu uppsagnarfrests, einn mánuð í senn. Beiðni um framlengingu skal vera skrifleg og send leigusala áður en uppsagnarfrestur er liðinn. Framlenging uppsagnarfrests skv. ákvæði þessu er einhliða ákvörðun leigusala.
7 Uppsögn leigutaka dregin til baka
7.1 Leigutaka sem sagt hefur upp leigusamningi er heimilt að draga uppsögn samningsins til baka, að því gefnu að hinu leigða hafi ekki þegar verið skilað. Leigusamningur aðila heldur þá gildi sínu að óbreyttu.
8 Rýming geymslu
8.1 Hafi leigutaki ekki rýmt og formlega skilað hinu leigða við lok uppsagnarfrests heldur leigusamningur aðila gildi sínu og litið er svo á að leigutaki hafi dregið uppsögn sína til baka. Ákvæði leigusamningsins, þ.m.t. upphafsdagur leigu haldast þá óbreytt með öllu og réttaráhrif uppsagnar leigutaka falla niður.
8.2 Við skil á hinu leigða ber leigutaka að tilkynna leigusala með tölvupósti á netfangið geymt@geymt.is um að hið leigða hafi verið rýmt að fullu. Skal leigusali þá framkvæma úttekt á hinu leigða og staðfesta með sannanlegum hætti innan 7 daga við leigutaka að skil hins leigða hafi verið framkvæmd með fullnægjandi hætti að mati leigusala. Vanræki leigutaki umrædda skyldu sína til að fá skriflega staðfestingu leigusala á að hinu leigða hafi verið skilað með fullnægjandi hætti, teljast skil hins leigða ófullnægjandi. Heldur leigusamningur aðila þá gildi sínu að öllu leyti og réttaráhrif uppsagnar leigutaka falla niður.
8.3 Skilji leigutaki eftir muni úr hinu leigða í hinu sameiginlega rými, teljast skil hins leigða ófullnægjandi. Gilda ákvæði skilmála þessara um rétt leigusala til förgunar með jöfnum hætti um slíka muni.
8.4 Við skil og rýmingu hins leigða skal leigutaki skila öllum aðgangskortum, hengilásum og lyklum að hinu leigða.
9 Tryggingar
9.1 Samningur þessi er húsaleigusamningur, en ekki þjónustusamningur. Af því leiðir að leigusali ber ekki ábyrgð á þeim munum sem leigutaki geymir í hinu leigða. Ábyrgð á varðveislu og tryggingu muna sem geymdir eru í hinu leigða hvílir því alfarið og eingöngu á leigutaka. Hefur leigusali þar af leiðandi hvorki umsjón né milligöngu um tryggingar á munum sem leigutakar geyma í hinu leigða. Kjósi leigutaki að tryggja muni sína sem geymdir eru í hinu leigða ber honum að hafa samband við sitt tryggingarfélag og tilkynna að þeir munir sem tryggja skal séu staðsettir í hinu leigða.
10 Greiðslur
10.1 Leiga er greidd fyrirfram, sbr. ákvæði leigusamnings aðila. Greitt er fyrir fyrsta mánuð við upphafsdag leigu. Þar á eftir skal leigutaki greiða umræddar fjárhæðir mánaðarlega með greiðsluseðli eða með skuldfærslu á greiðslukorti hans, kjósi hann það. Ber leigutaki allan kostnað sem af greiðslu kann að hljótast, svo sem seðilgjald, rafrænt skráningargjald o.s.fr.v.
10.2 Leigugreiðslur skulu verðtryggðar og hækka til samræmis við hækkun byggingarvísitölu, frá grunnvísitölu þess mánaðar sem samningur er undirritaður, til gjalddaga. Verði lækkun á byggingarvísitölu haldast fjárhæðir óbreyttar. Leigusala er heimilt að breyta leiguverði en slíkt skal tilkynnt leigutaka skriflega með tölvupósti með a.m.k. 30 daga fyrirvara og tekur gildi við upphaf næsta leigumánaðar þar á eftir. Sætti leigutaki sig ekki við verðbreytinguna er honum heimilt að segja samningnum upp áður en verðbreytingin tekur gildi. Kjörum TLS samninga sbr. 11. gr. skilmála þessa verður þó ekki breytt einhliða á samningstímanum nema við endurnýjun þeirra.
10.3 Leigusala er heimilt, en ekki skylt, að krefjast þess við gerð leigusamnings að leigutaki leggi fram greiðslutryggingu sem nemur allt að eins mánaðar leigu. Hvort greiðslutryggingar er krafist og fjárhæð hennar skal koma fram í leigusamningi. Við ákvörðun um greiðslutryggingu er leigusala heimilt að líta meðal annars til fyrirframgreiðslu leigu, samningslengdar og annarra málefnalegra sjónarmiða.
10.4 Hafi leigutaki ofgreitt leigu eða hann á kröfu á hendur leigusala vegna uppgjörs við lok leigusamnings, mun leigusali endurgreiða leigutaka innan 30 daga frá síðasta leigudegi. Hið sama gildir um endurgreiðslu greiðslutryggingar sem leigutaki lagði fram við upphaf leigu. Leigusali mun endurgreiða með bakfærslu á greiðslukort eða millifærslu á bankareikning leigutaka. Leigutaki heimilar leigusala að tilkynna vanskil hans og eftir atvikum ábyrgðaraðila hans, sem varað hafa lengur en 40 daga til Creditinfo Lánstrausts hf., til skráningar á vanskilaskrá.
10.5 Leigutaki ber ábyrgð á því að veittar séu réttar upplýsingar um þann greiðslumáta sem hann kýs, s.s. greiðslukort, nafn greiðanda, gildistíma greiðslukorts, númer bankareiknings og að tengdur reikningur, ef einhver er, hafi næga innistæðu. Leigutaka ber að uppfæra þegar þörf krefur nauðsynlegar upplýsingar með skriflegum hætti, eigi síðar en 30 dögum áður en uppgefið greiðslukort rennur út.
10.6 Ef uppgefið greiðslukort reynist ógilt, lokað, stolið, notað í heimildarleysi frá korthafa eða ef korthafi hafnar greiðslu er leigusala heimilt að rifta samningi aðila án fyrirvara.
10.7 Berist greiðsla ekki á eða fyrir eindaga ber leigutaka að greiða dráttarvexti skv. ákvörðun Seðlabanka Íslands, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
11 Tímabundnir langtímasamningar (TLS samningar)
11.1 Tímabundnir langtímasamningar (3 mánuðir eða lengri) (TLS samningur) eru bindandi og óuppsegjanlegir af hálfu leigutaka. Leigusali getur sagt upp TLS samningi með sama hætti og öðrum samningum, sbr. vanefndaúrræði samnings, skilmála þessa og gildandi laga.
11.2 Hafi leigutaki gert tímabundinn samning (TLS samning) til 3 mánaða eða lengri tíma og staðgreitt leigu fyrir fram, skal leigusali senda leigutaka nýjan greiðsluseðil fyrir sambærilegu leigutímabili eigi síðar en 7 dögum áður en yfirstandandi tímabili lýkur. Greiðsla leigutaka á umræddum greiðsluseðli fyrir eindaga, jafngildir samþykki hans á framlengingu samningsins til nýs, jafnlangs tímabils, og verður samningurinn þá bindandi og óuppsegjanlegur af hálfu leigutaka í þá mánuði sem greitt var fyrir. Leigufjárhæð nýja tímabilsins skal taka mið af gildandi gjaldskrá leigusala á gjalddaga greiðsluseðilsins. Hafi greiðsla ekki borist á eindaga og leigutaki hefur ekki rýmt hið leigða við lok yfirstandandi tímabils, fellur TLS samningurinn úr gildi en leigusamningurinn breytist sjálfkrafa í almennan, ótímabundinn samning með mánaðarlegum greiðslum og eins mánaðar gagnkvæmum uppsagnarfresti samkvæmt almennum kjörum og gjaldskrá leigusala hverju sinni, þar til hinu leigða hefur verið formlega skilað.
12 Notkun hins leigða
12.1 Leigutaka er einungis heimilt að nota hið leigða til geymslu muna og gagna.
12.2 Leigutaka er óheimilt að geyma hættuleg eða eldfim efni, þ.m.t. en ekki eingöngu eldsneyti, sprengiefni, sýru, efni sem gefa frá sér sterka lykt, efni sem þarfnast kælingar, vatns eða frosts, efni sem rotna, vélknúin ökutæki, gaskúta eða hvers konar önnur efni, muni eða annað lausafé sem er til þess fallið að valda hvers konar tjóni á hinu leigða eða sameiginlegu rými leigusala, eða valda truflun eða ónæði í húsnæðinu. Leigutaki skal framfylgja reglum brunamálayfirvalda og fara að öllu leyti eftir fyrirliggjandi og síðar tilkomnum umgengisreglum og tilmælum leigusala þar að lútandi.
12.3 Leigutaka er skylt að gæta vel að umgengni um hið leigða og sameiginlegt rými húsnæðis leigusala. Leigutaka er óheimilt með öllu að breyta hinu leigða. Sameiginlegt rými skal einungis nota til aðgengis að hinu leigða, s.s. til flutnings muna til eða frá hinu leigða. Leigutaka er óheimilt að skilja eftir eða geyma muni í hinu sameiginlega rými.
12.4 Leigutaka er óheimilt að framleigja hið leigða að hluta eða í heild. Þá er leigutaka óheimilt að framselja réttindi sín eða skyldur samkvæmt samningi og skilmálum þessum. Leigutaka er óheimilt að nýta hið leigða sem lögheimili eða starfstöð.
13 Ástand hins leigða við afhendingu
13.1 Við undirritun samnings staðfestir leigutaki að hann hafi skoðað hið leigða og gerir hvorki athugasemdir við ástand þess, lögun, stærð né staðsetningu. Leigutaka ber að skila hinu leigða í sama ástandi og við upphaf leigu.
14 Ábyrgð leigutaka á skemmdum á hinu leigða
14.1 Leigutaki ber ábyrgð á öllu tjóni er hann kann að valda á hinu leigða, sem og tjóni sem hann veldur á sameiginlegu rými leigusala, s.s. göngum, lyftum, stigagöngum og öðrum rýmum leigusala í húsnæði þess leigða. Leigutaki skal tilkynna leigusala tafarlaust hafi hann valdið tjóni á hinu leigða eða sameiginlegu rými leigusala, sem og ef eitthvað þarfnast lagfæringar eða viðhalds.
15 Aðgangur að hinu leigða
15.1 Aðgangur leigutaka að hinu leigða fer eftir staðsetningu geymslunnar:
1. Geymslur að Miðhrauni 4, Garðabæ: Leigutaki hefur aðgang að hinu leigða á öllum tímum sólarhrings, árið um kring.
2. Geymslur að Stálhellu 14, Hafnarfirði: Leigutaki hefur aðgang að hinu leigða milli kl. 09:00 og kl. 21:00 alla daga.
Takmarkanir á aðgengi geta þó átt sér stað ef vanefndir leigutaka leiða til slíkra takmarkana.
15.2 Leigusala er heimilt að opna og skoða hið leigða með 24 klukkustunda fyrirvara vegna nauðsynlegs eftirlits, viðhalds og viðgerða. Leigusala er heimilt að opna hið leigða án fyrirvara ef brýn nauðsyn krefur, svo sem vegna eldsvoða, vatnsleka, lyktar, gruns um hættuleg eða ólögleg efni, fyrirmæla yfirvalda eða til að koma í veg fyrir yfirvofandi tjón.
15.3 Opnunartími skrifstofu má finna á www.geymt.is. Leigusali hefur rétt til að breyta einhliða skrifstofutíma sínum, án tilkynningar. Skrifstofutími skal þó að lágmarki vera 20 tímar í viku hverri.
16 Aðgangur þriðja aðila að hinu leigða
16.1 Kjósi leigutaki að veita þriðja aðila aðgang að hinu leigða þarf að tilkynna leigusala slíkt með skriflegum hætti. Leigutaki sjálfur getur þó veitt slíka heimild til þriðja aðila með símtali til leigusala, að því gefnu að staðfest sé að hringt sé úr því símanúmeri sem leigutaki gefur upp á samningi aðila. Leigusali ber enga ábyrgð á hvers konar tjóni sem aðgangur þriðja aðila kann að valda leigutaka. Þá ber leigutaki óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á því tjóni sem þriðji aðili, sem veittur hefur verið aðgangur að hinu leigða, kann að valda með beinum eða óbeinum hætti á hinu leigða, sameiginlegu rými leigusala eða munum sem geymdir eru í hinu leigða.
17 Eftirlit og öryggi
17.1 Rafræn vöktun fer fram í og við húsnæði leigusala í þágu öryggis og eignavörslu. Sé vatnsúðari í hinu leigða skuldbindur leigutaki sig til þess að láta allt svæði í hinu leigða sem er allt að 50cm frá vatnsúðaranum vera autt.
18 Bilanir
18.1 Leigutaki á engar kröfur á leigusala ef brunaviðvörunarkerfi, brunavarnir, aðgangsstýrikerfi, þjófavarnarkerfi, vatnslekaviðvörunarkerfi, vatnsúðakerfi, öryggismyndavélar, hreyfiskynjarar, meindýravarnir, vatnsleiðslur eða rafmagn bila eða virka ekki í samræmi við væntingar leigutaka.
19 Tilkynningar
19.1 Uppsögn, tilkynningar, áminningar, ítrekanir, áskoranir og hvers konar yfirlýsingar af hálfu leigusala verða sendar á uppgefið heimilisfang leigutaka á Íslandi, netfang leigutaka sem uppgefið er á leigusamningi, eða eftir atvikum á lögheimili leigutaka.
19.2 Leigutaka er skylt að tilkynna allar breytingar á uppgefnum upplýsingum um sig, svo sem heimilisfang, tölvupóstfang, símanúmer o.s.frv. til leigusala með skriflegum og sannanlegum hætti.
20 Breytingar
20.1 Leigusali áskilur sér rétt til þess að breyta almennum skilmálum þessum, gjaldskrá og persónuverndarstefnu. Breytingar skulu tilkynntar leigutaka skriflega með tölvupósti með a.m.k. 30 daga fyrirvara áður en þær taka gildi. Sætti leigutaki sig ekki við breytingarnar er honum heimilt að segja samningi sínum upp áður en þær taka gildi. Berist engin skrifleg uppsögn frá leigutaka innan fyrirvarans telst hann hafa samþykkt breytingarnar.
20.2 Hinir gildandi skilmálar eru aðgengilegir á heimasíðu leigusala hverju sinni.
20.3 Breytingar og viðbætur við samning aðila skulu gerðar skriflega af báðum aðilum.
21 Ýmislegt
21.1 Aðilar samþykkja að ef einhver ákvæði samnings aðila eða skilmála þessa reynast ógild eða óframkvæmanleg, munu slík ákvæði og aðrir hlutar samnings aðila og skilmála þessara gilda áfram að því marki sem mögulegt er.
22 Lög, varnarþing og úrlausn ágreiningsefna
22.1 Samningar, skilmálar þessir og samskipti Geymt en ekki gleymt ehf. við viðskiptavini falla undir íslensk lög.
22.2 Aðilum er skylt að koma fram gagnvart gagnaðila af heiðarleika og sanngirni. Aðilum er af þeim sökum skylt að leitast eftir fremsta megni við að leysa ágreining sem rísa kann vegna samningssambands aðila í sátt og þannig að niðurstaða geti talist ásættanleg fyrir báða aðila. Náist ekki sátt milli aðila fer um varnarþing samkvæmt íslenskum réttarfarsreglum.
Miðhraun 4, Garðabæ
©2026 Geymt en ekki gleymt ehf. kt.470621-0520
Miðhraun 4, 210 Garðabær S: 790-6070
geymt@geymt.is