+354 790 6070 geymt@geymt.is
ÍslenskaÍS|EnglishEN|PolskiPL
Geymt geymsluaðstaða, Stálhella 14, Hafnarfjörður
Aðstaða
Slökkvikerfi
Inngangur
Geymt - Hafnarfjörður

Öruggar geymslur
að Stálhellu 14,
221 Hafnarfjörður

Upphitaðar geymslur innandyra, frá 1–16 m². Öryggismyndavélar og öryggiskerfi. Aðgengi alla daga frá kl. 9:00–21:00.

Til að bóka geymslu
Póstur Hringja

INNI Í HÚSNÆÐINU

Gangur Hrein og snyrtileg aðstaða
Gangur Öryggismyndavélar
Einingar Öruggar læsingar
Einingar Brunaviðvörunar- og úðakerfi

AF HVERJU GEYMT?

1

Aðgengi alla daga

Aðgangur að geymslunni alla daga vikunnar frá kl. 9:00–21:00, líka á frídögum

2

Upphitaðar geymslur

Búslóðin varin fyrir íslensku veðri og frosti allt árið um kring

3

Vaktað húsnæði

Sjálfvirkt hlið, öryggismyndavélar, bruna- og vatnsúðakerfi

4

Öruggt aðgengi og læsingar

Persónulegur aðgangskóði og hengilás á hverri geymslu.

Öruggar geymslur að Stálhellu 14 í Hafnarfirði

GEYMT býður upp á upphitaðar geymslur, frá 1–16 m², að Stálhellu 14 í Hafnarfirði. Leigjendur hafa aðgang alla daga frá kl. 9:00–21:00.

Hvort sem þig vantar pláss fyrir húsgögn og búslóð, vörulager fyrirtækis, árstíðabundna muni eða tímabundna geymslu á meðan á flutningum eða framkvæmdum stendur, bjóðum við upp á hentugar geymslulausnir á góðum stað.

Geymslurnar henta bæði einstaklingum og fyrirtækjum sem leita að hreinu, öruggu og hagkvæmu geymslurými innandyra.

Örugg aðstaða

Öryggismyndavélar og önnur öryggiskerfi

Upphitað

Upphitaðar geymslur allt árið í kring

Aðgangur alla daga

Frá kl. 9:00-21:00 alla daga vikunnar, líka á frídögum

Aðgengi og læsingar

Persónulegur aðgangskóði og hengilás á hverri geymslu

STAÐSETNING

Hvernig finn ég GEYMT?

Húsnæði Geymt að Stálhellu 14 er staðsett á geymslusvæðinu í Hafnarfirði. Auðveldast er að aka Reykjanesbrautina, beygja inn hjá álverinu í Straumsvík og aka síðan undir Reykjanesbrautina og inn á geymslusvæðið.

Gula GEYMT-skiltið er á hægri hönd.

VERÐ

Verð geymslna við Stálhellu 14

Einingastærð Skammtímaleiga / mán 6 mánuðir –30% 12 mánuðir –50%

ⓘ Afsláttur gildir þegar valið leigutímabil er greitt fyrir fram. Enginn virðisaukaskattur bætist við leiguverð geymslna.

GEYMSLULEIÐBEININGAR

Hvað má geyma hjá GEYMT?

✓ Leyfilegir munir
Búslóð og almennir heimilismunir
Húsgögn á meðan á flutningum eða framkvæmdum stendur
Munir úr dánarbúum
Árstíðabundnir munir og vetrarvörur
Nagladekk og önnur árstíðabundin dekk
Skíða- og snjóbrettabúnaður
Jólaskraut
Garðhúsgögn
Ferðabúnaður og fylgihlutir
Verkfæri og byggingarefni
Bókhaldsgögn og skjöl til langtímageymslu
Vörulager og rekstrarvörur fyrirtækja
✕ Óheimilt er að geyma
Hættuleg efni
Eldfim efni eða eldfima muni
Matvæli
Ólöglega muni
Dýr
Muni sem gefa frá sér sterka lykt

SPURT OG SVARAÐ

Húsnæði Geymt að Stálhella 14 er staðsett á geymslusvæðinu í Hafnarfirði.

Auðveldast er að aka Reykjanesbrautina, beygja inn hjá álverinu í Straumsvík og aka síðan undir Reykjanesbrautina og inn á geymslusvæðið. Gula GEYMT-skiltið er á hægri hönd.

Leigjendur við Stálhellu 14 hafa aðgang að geymslum sínum alla daga vikunnar, einnig á almennum frídögum, frá kl. 9:00–21:00.

Já. Í húsnæðinu eru öryggismyndavélar á göngum og aðgangur er stýrður með persónulegum aðgangskóðum. Hver geymsla er jafnframt læst sérstaklega.

Í húsnæðinu eru einnig brunaviðvörunar- og vatnsúðakerfi. Við leggjum áherslu á að tryggja eins örugga aðstöðu og kostur er fyrir muni leigjenda.

Já. Geymslurnar við Stálhellu 14 eru innandyra og upphitaðar allt árið. Það hjálpar til við að verja muni gegn íslensku veðri, kulda og frosti.

Við bjóðum upp á geymslur í mörgum stærðum, frá 1 m² upp í 16 m².

Geymslurnar henta bæði einstaklingum og fyrirtækjum, hvort sem geyma þarf nokkra kassa, húsgögn, árstíðabundna muni eða vörulager fyrirtækis.

GEYMT krefst almennt ekki tryggingarfjár þegar leiga er greidd fyrirfram í þrjá mánuði eða lengur.

Við mánaðarleigu án fyrirframgreiðslu greiðir leigjandi yfirleitt leigu fyrsta mánaðar ásamt tryggingarfé sem nemur eins mánaðar leigu við undirritun samnings.

Fyrirkomulag tryggingarfjár getur þó verið mismunandi eftir leigusamningi og greiðslufyrirkomulagi.

Aðstaða GEYMT er hönnuð þannig að auðvelt sé að ferma og afferma. Hægt er að aka upp að inngangi hússins og nota vagna og lyftu til að flytja muni að geymslunni.

GEYMT býður ekki upp á geymslur utandyra þar sem hægt er að leggja ökutæki beint við hverja geymslu.

geymt-footer-logo

Stálhella 14, Hafnarfjörður – MAP

Miðhraun 4, Garðabær – MAP

©2026 Geymt en ekki gleymt ehf. kt.470621-0520
Miðhraun 4, 210 Garðabær S: 790-6070
geymt@geymt.is