+354 790 6070 geymt@geymt.is
ÍslenskaÍS|EnglishEN|PolskiPL
Geymt - Öruggar geymslur að Miðhrauni 4, Garðabær
Geymt - Garðabær

Öruggar geymslur
að Miðhrauni 4,
Garðabær

Upphitaðar geymslur innandyra, frá 1–16 m². Öryggismyndavélar, öryggiskerfi og aðgengi allan sólarhringinn.

Til að bóka geymslu
Senda
tölvupóst
Hringja
í okkur

INNI Í HÚSNÆÐINU

Hrein og snyrtileg aðstaða Hrein og snyrtileg aðstaða
Öryggismyndavélar Öryggismyndavélar
Öruggar læsingar Öruggar læsingar
Brunaviðvörunar- og úðakerfi Brunaviðvörunar- og úðakerfi

AF HVERJU GEYMT?

1

Aðgengi allan sólarhringinn

Ótakmarkað aðgengi, allan sólarhringinn

2

Upphitaðar geymslur

Búslóðin varin fyrir íslensku veðri og frosti allt árið um kring

3

Vaktað húsnæði

Öryggismyndavélar, öryggiskerfi, brunavarnir og vatnsúðakerfi

4

Öruggt aðgengi og læsingar

Persónulegur aðgangskóði og hengilásar á hverri geymslu

Öruggar geymslur að Miðhraun 4, 210 Garðabær

GEYMT býður upp á upphitaðar geymslur, frá 1–16 m², að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Leigjendur hafa aðgang að geymslunum allan sólarhringinn.

Hvort sem þig vantar pláss fyrir húsgögn og búslóð, vörulager fyrirtækis, árstíðabundna muni eða tímabundna geymslu á meðan á flutningum eða framkvæmdum stendur, bjóðum við upp á hentugar geymslulausnir á góðum stað.

Geymslurnar henta bæði einstaklingum og fyrirtækjum sem leita að hreinu, öruggu og hagkvæmu geymslurými innandyra.

Örugg aðstaða

Öryggismyndavélar og önnur öryggiskerfi.

Upphitað

Upphitaðar geymslur allt árið í kring.

Aðgangur allan sólarhringinn

Aðgengi allan sólarhringinn

Aðgengi og læsingar

Persónulegur aðgangskóði og hengilás á hverri geymslu.

STAÐSETNING

Hvernig finn ég GEYMT?

Húsnæðið er á góðum stað í Garðabæ og auðvelt er að komast þangað frá Reykjavík, Hafnarfirði og nærliggjandi svæðum.

Miðhraun 4 er staðsett á móti Marel í Garðabæ, rétt við Hafnarfjarðarveg.

VERÐ

Verð geymslna - Miðhraun 4

Unit size Skammtímaleiga / mo 6 mánuðir –15% 12 mánuðir –25%

ⓘ Afsláttur gildir þegar valið leigutímabil er greitt fyrirfram. Leiguverð geymslna er án virðisaukaskatts.

GEYMSLULEIÐBEININGAR

HVAÐ MÁ GEYMA HJÁ GEYMT?

✓ Leyfilegir munir
Búslóð og almennir heimilismunir
Húsgögn á meðan á flutningum eða framkvæmdum stendur
Munir úr dánarbúum
Árstíðabundnir munir og vetrarvörur
Nagladekk og önnur árstíðabundin dekk
Skíða- og snjóbrettabúnaður
Jólaskraut
Garðhúsgögn
Ferðabúnaður og fylgihlutir
Verkfæri og byggingarefni
Bókhaldsgögn og skjöl til langtímageymslu
Vörulager og rekstrarvörur fyrirtækja
✕ Óheimilt er að geyma
Hættuleg efni
Eldfim efni eða eldfima muni
Matvæli
Ólögleg efni eða muni
Dýr eða lifandi verur
Muni sem gefa frá sér sterka lykt

SPURT OG SVARAÐ

GEYMT í Garðabæ er að Miðhrauni 4. Auðvelt er að komast að húsnæðinu frá Reykjavík, Hafnarfirði, Garðabæ og nærliggjandi svæðum. Hægt er að aka að Miðhrauni bæði frá Hafnarfjarðarvegi og frá Kaplakrika.
Leigjendur við Miðhraun 4 hafa aðgang að geymslum sínum allan sólarhringinn.

Já. Öryggismyndavélar eru á göngum og aðgangur að húsnæðinu er stýrður með persónulegum aðgangskóðum. Hreyfiskynjari er inni í hverri geymslu og hver geymsla er jafnframt læst sérstaklega með hengilás sem leigutakar koma með sjálfir.

Húsnæðið er einnig búið brunaviðvörunar- og vatnsúðakerfi. Við leggjum áherslu á að tryggja eins örugga aðstöðu og kostur er fyrir muni leigjenda.

Já. Geymslurnar við Miðhraun 4 eru innandyra og upphitaðar allt árið. Það hjálpar til við að verja muni gegn íslensku veðri, kulda og frosti.

Við bjóðum upp á geymslur í mörgum stærðum, frá 1 m² upp í 16 m².

Geymslurnar henta bæði einstaklingum og fyrirtækjum, hvort sem geyma þarf nokkra kassa, húsgögn, árstíðabundna muni eða vörulager fyrirtækis.

GEYMT krefst almennt ekki tryggingarfjár þegar leiga er greidd fyrirfram í þrjá mánuði eða lengur.

Við mánaðarleigu án fyrirframgreiðslu greiðir leigjandi yfirleitt leigu fyrsta mánaðar ásamt tryggingarfé sem nemur eins mánaðar leigu við undirritun samnings.

Fyrirkomulag tryggingarfjár getur þó verið mismunandi eftir leigusamningi og greiðslufyrirkomulagi.

Aðstaða GEYMT er hönnuð þannig að auðvelt sé að ferma og afferma. Hægt er að aka upp að inngangi hússins og nota síðan vagna, lyftur og hleðslusvæði innandyra til að flytja muni að geymslunni.

GEYMT býður ekki upp á geymslur utandyra þar sem hægt er að leggja ökutæki beint við hverja geymslu.

geymt-footer-logo

Stálhella 14, Hafnarfjörður – MAP

Miðhraun 4, Garðabær – MAP

©2026 Geymt en ekki gleymt ehf. kt.470621-0520
Miðhraun 4, 210 Garðabær S: 790-6070
geymt@geymt.is