Skilmálar húsaleigusamninga Geymt en ekki gleymt ehf.
1 Almennt
1.1 Almennir skilmálar Geymt en ekki gleymt ehf., kt. 470621-0520 (hér eftir leigusali) gilda um öll viðskipti um leigu á geymslum leigusala, nema um annað sé samið skriflega. Skilmálar þessir, ásamt leigusamningi, gjaldskrá, persónuverndarstefnu leigusala og eftir atvikum samningsviðaukum fyrir hvern viðskiptavin, fela að jafnaði ísér heildarsamning aðilanna um viðskiptin.
1.2 Almennir skilmálar þessir taka gildi þann 20. júní 2021.
2 Gildissvið skilmála Geymt en ekki gleymt ehf.
2.1 Skilmálar þessir gilda um leigu og afnot leigutaka af geymslum leigusala.
2.2 Leigutaki skuldbindur sig til að hlíta skilmálum þessum að öllu leyti.
3 Vanefndir og riftun.
3.1 Vanefnd leigutaka kann að leiða til riftunar samninga og getur leigusali beint skriflegriáskorun til leigutaka um úrbætur. Hvorum aðila er heimilt að rifta samningssambandi aðila án fyrirvara ef um er að ræða verulega vanefnd af hálfu gagnaðila í samræmi við skilmála þessa, samninga aðila og almennar reglur sem um samningssambandið gilda. Leigusali getur auk venjulegra vanefndarheimilda meðal annars rift samningi vegna vanefnda ef:
3.1.1 Leigutaki greiðir ekki reikninga innan 30 daga frá eindaga.
3.1.2 Leigutaki uppfyllir ekki samningsbundnar skyldur sínar innan 30 daga frá
dagsetningu skriflegrar tilkynningar þess efnis.
3.1.3 Ef leigutaki notar geymslu leigusala með öðrum hætti en um er samið.
3.1.4 Ef leigutaka er veitt heimild til greiðslustöðvunar, hann fær heimild til að
leita nauðasamninga eða verður tekinn til gjaldþrotaskipta.
3.2 Veruleg vanefnd leigutaka veitir leigusala heimild til að takmarka aðgang leigutaka að hinu leigða, þ.m.t. með því að breyta læsingu hins leigða.
3.3 Vanefnd leigutaka veitir leigusala beinan og ótakmarkaðan rétt til að rýma hið leigða, með einhliða aðgerð án atbeina sýslumanns. Er leigutaka heimilt að farga þeim munum sem geymdir eru í hinu leigða, eða leggja hald á þá til tryggingar útistandandi leigugreiðslna. Leigutaki skal bera allan kostnað sem hlýst af rýmingu, förgun og haldlagningu. Komi til haldlagningar muna samkvæmt ákvæði þessu er leigusala heimilt að selja þá án frekari fyrirvara og skal söluandvirði ganga til greiðslu útistandandi skuldar leigutaka. Hvers konar tjón sem leigutaki kann að verða fyrir í tengslum við sölu muna samkvæmt ákvæði þessu skal alfarið borið af leigutaka sjálfum, hvort sem um fjártjón eða ófjárhagslegt tjón er að ræða. Ber leigusali enga ábyrgð á hvers konar tjóni sem leigutaki kann að telja sig hafa orðið fyrir vegna þessa, óháð því hvort leigutaki geri síðar upp útistandandi skuldir við leigusala.
3.4 Leigusali skal tilkynna leigutaka um rýmingu hins leigða, förgun, haldlagningu og sölu muna með a.m.k. 14 daga fyrirvara. Fyrirvarinn telst frá dagsetningu tilkynningar sem send er leigutaka.
3.5 Leigusala er heimilt að halda eftir fyrirframgreiddri leigu og/eða greiðslutryggingu til tryggingar útistandandi kröfu á hendur leigutaka
4 Uppsögn samnings
4.1 Gagnkvæmur uppsagnarfrestur aðila er einn mánuður. Leigutíma skal telja í heilum mánuðum frá fyrsta leigudegi, sbr. eftirfarandi dæmi: Ef upphafsdagur leigu er 10. janúar og uppsögn er móttekin 1. febrúar, skal síðasti leigudagur vera 9. mars. Formleg skil hins leigða skulu hafa farið fram eigi síðar en kl. 17:00 þann 10. mars.
4.2 Leigusali getur hvenær sem er, án fyrirvara og án þess að skapa sér bótaskyldu, sagt upp samningi við leigutaka vegna brots eða vanefnda hans á samningsskyldum, nema annað leiði ótvírætt af skilmálum þessum, samningum aðila eða lögum. Vanefnd viðskiptavinar á einum samningi við leigutaka heimilar leigutaka uppsögn allra samninga sem leigutaki kann að hafa við leigusala.
5 Form uppsagnar
5.1 Uppsögn af hálfu leigutaka skal tilkynna skriflega með tölvupósti á netfangið geymt@geymt.is, eða með öðrum sannanlegum skriflegum hætti.
6 Ósk leigutaka um tímabundna framlengingu
6.1 Leigutaki sem sagt hefur upp leigusamningi getur óskað eftir tímabundinni framlengingu uppsagnarfrests, einn mánuð í senn. Beiðni um framlengingu skal vera skrifleg og send leigusala áður en uppsagnarfrestur er liðinn. Framlenging
uppsagnarfrests skv. ákvæði þessu er einhliða ákvörðun leigusala.
7 Uppsögn leigutaka dregin til baka
7.1 Leigutaka sem sagt hefur upp leigusamningi er heimilt að draga uppsögn samningsins til baka, að því gefnu að hinu leigða hafi ekki þegar verið skilað. Leigusamningur aðila heldur þá gildi sínu að óbreyttu
8 Rýming geymslu
8.1 Hafi leigutaki ekki rýmt og formlega skilað hinu leigða við lok uppsagnarfrests heldur leigusamningur aðila gildi sínu og litið er svo á að leigutaki hafi dregið uppsögn sína til baka. Ákvæði leigusamningsins, þ.m.t. upphafsdagur leigu haldast þá óbreytt með öllu og réttaráhrif uppsagnar leigutaka falla niður.
8.2 Við skil á hinu leigða ber leigutaka að tilkynna leigusala um að hið leigða hafi verið rýmt að fullu. Skal leigusali þá framkvæma úttekt á hinu leigða og staðfesta með sannanlegum hætti við leigutaka að skil hins leigða hafi verið framkvæmd með fullnægjandi hætti að mati leigusala. Vanræki leigutaki umrædda skyldu sína til að fá skriflega staðfestingu leigusala á að hinu leigða hafi verið skilað með fullnægjandi hætti, teljast skil hins leigða ófullnægjandi. Heldur leigusamningur aðila þá gildi sínu að öllu leyti og réttaráhrif uppsagnar leigutaka falla niður.
8.3 Skilji leigutaki eftir muni úr hinu leigða í hinu sameiginlega rými, teljast skil hins leigða ófullnægjandi. Gilda ákvæði skilmála þessara um rétt leigusala til förgunar með jöfnum hætti um slíka muni.
8.4 Við skil og rýmingu hins leigða skal leigutaki skila öllum aðgangskortum, hengilásum
og lyklum að hinu leigða.
9 Tryggingar
9.1 Samningur þessi er húsaleigusamningur, en ekki þjónustusamningur. Af því leiðir að leigusali ber ekki ábyrgð á þeim munum sem leigutaki geymir í hinu leigða. Ábyrgð á varðveislu og tryggingu muna sem geymdir eru í hinu leigða hvílir því alfarið og eingöngu á leigutaka. Hefur leigusali þar af leiðandi hvorki umsjón né milligöngu um tryggingar á munum sem leigutakar geyma í hinu leigða. Kjósi leigutaki að tryggja muni sína sem geymdir eru í hinu leigða ber honum að hafa samband við sitt tryggingarfélag og tilkynna að þeir munir sem tryggja skal séu staðsettir í hinu leigða.
10 Greiðslur
10.1 Leiga er greidd fyrirfram, sbr. ákvæði leigusamnings aðila. Greitt er fyrir fyrsta mánuð við upphafsdag leigu, og þar á eftir er greiðslukort leigutaka skuldfært mánaðarlega. Sé leiga greidd með öðrum hætti, s.s. greiðsluseðlum eða öðrum sambærilegum hætti, ber leigutaki allan kostnað sem af því kann að hljótast, svo sem seðilgjald, rafrænt skráningargjald o.s.fr.v.
10.2 Leigugreiðslur skulu verðtryggðar og hækka til samræmis við hækkun byggingarvísitölu, frá grunnvísitölu þess mánaðar sem samningur er undirritaður, til gjalddaga. Verði lækkun á byggingarvísitölu haldast fjárhæðir óbreyttar. Leigusala er heimilt að breyta leiguverði án fyrirvara. Kjörum TLS samninga sbr. 11. gr. skilmála þessa verður þó ekki breytt nema við endurnýjun þeirra.
10.3 Við undirritun leigusamnings skal leigutaki leggja fram greiðslutryggingu sem nemur eins mánaðar leigu.
10.4 Hafi leigutaki ofgreitt leigu eða hann á kröfu á hendur leigusala vegna uppgjörs við lok leigusamnings, mun leigusali endurgreiða leigutaka innan 30 daga frá síðasta leigudegi. Hið sama gildir um endurgreiðslu greiðslutryggingar sem leigutaki lagði fram við upphaf leigu. Leigusali mun endurgreiða með bakfærslu á greiðslukort eða millifærslu á bankareikning leigutaka. Leigutaki heimilar leigusala að tilkynna vanskil hans og eftir atvikum ábyrgðaraðila hans, sem varað hafa lengur en 40 daga til Creditinfo Lánstrausts hf., til skráningar á vanskilaskrá.
10.6 Ef uppgefið greiðslukort reynist ógilt, lokað, stolið, notað í heimildarleysi frá korthafa eða ef korthafi hafnar greiðslu er leigusala heimilt að rifta samningi aðila án fyrirvara.
10.7 Berist greiðsla ekki á eða fyrir eindaga ber leigutaka að greiða dráttarvexti skv. ákvörðun Seðlabanka Íslands, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
11 Tímabundnir langtímasamningar (TLS samningar)
11.1 Tímabundnir langtímasamningar (6 mánuðir eða lengri) (TLS samningur) eru bindandi og óuppsegjanlegir af hálfu leigutaka. Leigusali getur sagt upp TLS samningi með sama hætti og öðrum samningum, sbr. vanefndaúrræði samnings, skilmála þessa og gildandi laga.
11.2 Áður en TLS samningur rennur út ber leigutaka að segja honum upp skriflega. Berist leigusala ekki skrifleg tilkynning um uppsögn á TLS samningi áður en gildistími hans er liðinn, falla ákvæði TLS samningsins úr gildi, þ.m.t. ákvæði um samningsbundna leigufjárhæð og uppsagnarskilmálar. Taka þá gildi leiguskilmálar almennra samninga skv. skilmálum þessum og skal upphafsdagur leigu, sbr. gr. 4.1. teljast fyrsti dagur eftir að gildistími TLS samnings er liðinn. Nýtt leiguverð tekur mið af gildandi gjaldskrá hverju sinni.
12 Notkun hins leigða
12.1 Leigutaka er einungis heimilt að nota hið leigða til geymslu muna og gagna.
12.2 Leigutaka er óheimilt að geyma hættuleg eða eldfim efni, þ.m.t. en ekki eingöngu eldsneyti, sprengiefni, sýru, efni sem gefa frá sér sterka lykt, efni sem þarfnast kælingar, vatns eða frosts, efni sem rotna, vélknúin ökutæki, gaskúta eða hvers konar önnur efni, muni eða annað lausafé sem er til þess fallið að valda hvers konar tjóni á hinu leigða eða sameiginlegu rými leigusala, eða valda truflun eða ónæði í húsnæðinu. Leigutaki skal framfylgja reglum brunamálayfirvalda og fara að öllu leyti eftir fyrirliggjandi og síðar tilkomnum umgengisreglum og tilmælum leigusala þar að lútandi.
12.3 Leigutaka er skylt að gæta vel að umgengni um hið leigða og sameiginlegt rými húsnæðis leigusala. Leigutaka er óheimilt með öllu að breyta hinu leigða. Sameiginlegt rými skal einungis nota til aðgengis að hinu leigða, s.s. til flutnings muna til eða frá hinu leigða. Leigutaka er óheimilt að skilja eftir eða geyma muni í hinu sameiginlega rými.
12.4 Leigutaka er óheimilt að framleigja hið leigða að hluta eða í heild. Þá er leigutaka óheimilt að framselja réttindi sín eða skyldur samkvæmt samningi og skilmálum þessum. Leigutaka er óheimilt að nýta hið leigða sem lögheimili eða starfstöð.
13 Ástand hins leigða við afhendingu
13.1 Við undirritun samnings staðfestir leigutaki að hann hafi skoðað hið leigða og gerir hvorki athugasemdir við ástand þess, lögun, stærð né staðsetningu. Leigutaka ber að skila hinu leigða í sama ástandi og við upphaf leigu.
14 Ábyrgð leigutaka á skemmdum á hinu leigða
14.1 Leigutaki ber ábyrgð á öllu tjóni er hann kann að valda á hinu leigða, sem og tjóni sem hann veldur á sameiginlegu rými leigusala, s.s. göngum, lyftum, stigagöngum og öðrum rýmum leigusala í húsnæði þess leigða. Leigutaki skal tilkynna leigusala tafarlaust hafi hann valdið tjóni á hinu leigða eða sameiginlegu rými leigusala, sem og ef eitthvað þarfnast lagfæringar eða viðhalds.
15 Aðgangur að hinu leigða
15.1 Leigutaki hefur aðgang að hinu leigða á öllum tímum sólarhrings árið um kring, nema vanefndir hans leiði til takmörkunar á aðgengi. Ef leigutaki hyggst komast í hið leigða utan afgreiðslutíma leigusala þarf leigutaki að fá lykla að útidyrum og öryggiskóða. Fyrir lykla, öryggiskóða og kennslu á öryggiskerfi er greitt samkvæmt gjaldskrá þjónustuaðila sem sér um fjölföldun lykla og kennslu á öryggiskerfi. Leigusali hefur rétt til að breyta einhliða skrifstofutía sínum, án tilkynningar. Skrifstofutími skal þó að lágmarki vera 20 tímar í viku hverri. Leigusali hefur rétt til að opna og ganga um hið leigða hvenær sem er, án tilkynningar til leigutaka.
15.2 Opnunartími skrifstofu má finna á geymt.is.
16 Aðgangur þriðja aðila að hinu leigða
16.1 Kjósi leigutaki að veita þriðja aðila aðgang að hinu leigða þarf að tilkynna leigusala slíkt með skriflegum hætti. Leigutaki sjálfur getur þó veitt slíka heimild til þriðja aðila með símtali til leigusala, að því gefnu að staðfest sé að hringt sé úr því símanúmeri sem leigutaki gefur upp á samningi aðila. Leigusali ber enga ábyrgð á hvers konar tjóni sem aðgangur þriðja aðila kann að valda leigutaka. Þá ber leigutaki óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á því tjóni sem þriðji aðili, sem veittur hefur verið aðgangur að hinu leigða, kann að valda með beinum eða óbeinum hætti á hinu leigða, sameiginlegu rými leigusala eða munum sem geymdir eru í hinu leigða.
16 Aðgangur þriðja aðila að hinu leigða
16.1 Kjósi leigutaki að veita þriðja aðila aðgang að hinu leigða þarf að tilkynna leigusala slíkt með skriflegum hætti. Leigutaki sjálfur getur þó veitt slíka heimild til þriðja aðila með símtali til leigusala, að því gefnu að staðfest sé að hringt sé úr því símanúmeri sem leigutaki gefur upp á samningi aðila. Leigusali ber enga ábyrgð á hvers konar tjóni sem aðgangur þriðja aðila kann að valda leigutaka. Þá ber leigutaki óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á því tjóni sem þriðji aðili, sem veittur hefur verið aðgangur að hinu leigða, kann að valda með beinum eða óbeinum hætti á hinu leigða, sameiginlegu rými
leigusala eða munum sem geymdir eru í hinu leigða.
17 Eftirlit og öryggi
17.1 Eftirlitsmyndavélar eru í og við húsnæði leigusala. Leigutaki er meðvitaður og samþykkur að umgengni um húsnæði leigusala sé mynduð og vistuð með stafrænum hætti. Sé vatnsúðari í hinu leigða skuldbindur leigutaki sig til þess að láta allt svæði í hinu leigða sem er allt að 50cm frá vatnsúðaranum vera autt.
18 Bilanir
18.1 Leigutaki á engar kröfur á leigusala ef brunaviðvörunarkerfi, brunavarnir, aðgangsstýrikerfi, þjófavarnarkerfi, vatnslekaviðvörunarkerfi, vatnsúðakerfi, öryggismyndavélar, hreyfiskynjarar, meindýravarnir, vatnsleiðslur eða rafmagn bila eða virka ekki í samræmi við væntingar leigutaka.
19 Tilkynningar
19.1 Uppsögn, tilkynningar, áminningar, ítrekanir, áskoranir og hvers konar yfirlýsingar af hálfu leigusala verða sendar á uppgefið heimilisfang leigutaka á Íslandi, netfang leigutaka sem uppgefið er á leigusamningi, eða eftir atvikum á lögheimili leigutaka.
19.2 Leigutaka er skylt að tilkynna allar breytingar á uppgefnum upplýsingum um sig, svo sem heimilisfang, tölvupóstfang, símanúmer o.s.frv. til leigutaka með skriflegum og sannanlegum hætti.
20 Breytingar
20.1 Leigusali áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum þessum, leigusamningi, viðaukum, gjaldskrá og persónuverndarstefnu. Sé það gert skal leigusali án tafar tilkynna leigutökum um það og gera hina nýju útgáfu skilmála þessara aðgengilega leigutökum. Berist engar athugasemdir frá leigutaka innan 15 virkra daga frá tilkynningu verður litið svo á að leigutaki hafi samþykkt breytingarnar.
20.2 Hinir gildandi skilmálar eru aðgengilegir á heimasíðu og appi leigutaka hverju sinni.
20.3 Breytingar og viðbætur við samning aðila skulu gerðar skriflega af báðum aðilum.
21 Ýmislegt
21.1 Aðilar samþykkja að ef einhver ákvæði samnings aðila eða skilmála þessa reynast ógild eða óframkvæmanleg, munu slík ákvæði og aðrir hlutar samnings aðila og skilmála þessara gilda áfram að því marki sem mögulegt er.
22 Lög, varnarþing og úrlausn ágreiningsefna
22.1 Samningar, skilmálar þessir og samskipti Geymt en ekki gleymt ehf. við viðskiptavini falla undir íslensk lög.
22.2 Aðilum er skylt að koma fram gagnvart gagnaðila af heiðarleika og sanngirni. Aðilum er af þeim sökum skylt að leitast eftir fremsta megni við að leysa ágreining sem rísa kann vegna samningssambands aðila í sátt og þannig að niðurstaða geti talist ásættanleg fyrir báða aðila. Náist ekki sátt milli aðila skulu mál vera rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Miðhraun 4, Garðabæ
©2022 Geymt en ekki gleymt ehf. kt.470621-0520
Miðhraun 4, 210 Garðabær S: 790-6070
geymt@geymt.is